Ráðstefnan Góðir stjórnarhættir - Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum verður haldin 10. apríl nk. í Háskóla Íslands. Þema ráðstefnunnar er: Áhrif og ákvarðanir stjórna. Aðalfyrirlesari er Bob Garratt, einn helsti hugmyndafræðingur góðra stjórnarhátta í Bretlandi. Ennfremur munu halda erindi: Helga Björk Eiríksdóttir - formaður bankaráðs Landsbankans, Eyjólfur Árni Rafnsson - stjórnarformaður Eikar og SA, Guðrún Hafsteinsdóttir - stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna og SI, Þórður Magnússon - stjórnarformaður Eyrir Invest, Þórey S. Þórðardóttir - framkvæmdastjóri Landssamtaka Lífeyrissjóða, Flóki Halldórsson - framkvæmdastjóri Stefnis og Páll Harðarson - forstjóri Nasdaq á Íslandi. Fundarstjóri er Eyþór Ívar Jónsson - forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti.
Mikilvægt að allir stjórnarmenn taki þátt!